57820-0009
VöruheitiLoftleiðir - Alfreð Elíasson
VerðISK 1.800
Lýsing
Alfreð Elíasson og félagar stofnuðu Loftleiðir nánast tómhentir lýðveldisárið 1944. Með samheldni og dugnaði gerðu þeir fyrirtækið það langstærsta á Íslandi og meðal tíu stærstu flugfélaganna á Atlantshafinu. Loftleiðir var fyrsta lágfargjaldafélag heims og var kallað "Hippaflugfélagið" vegna vinsælda þess meðal ungs fólks með lítil fjárráð. Baráttuhugurinn og krafturinn sem einkenndi fyrirtækið var kallaður Loftleiðaandinn, en hann var ekki síst tilkominn vegna einstakra leiðtogahæfileika Alfreðs Elíassonar. Auk íslensk þular og texta er enskur þulur og texti á myndinni. Lengd: 131 mínúta.