Icelandair í átaki til styrktar Krabbameinsfélags Íslands

Icelandair – Saga Boutique tekur þátt í sérstöku átaki til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands sem hófst með formlegum hætti 29. apríl s.l. Átakið nefnist „Á allra vörum“ og felst í því að seldir verða um borð sérstakir YSL gloss (varalitir) og rennur allur ágóði sölunnar óskiptur til Krabbameinsfélags, þ.e. til kaupa á nýjum greiningartækjum sem verið er að endurnýja um þessar mundir. Af þessu tilefni tóku tíu þjóðþekktar konur við fyrstu varalitunum sem er táknrænt, þar sem ein af hverjum tíu konum á Íslandi greinist með brjóstakrabbamein einhvern tímann á ævinni. Slagorð átaksins er: ÞVÍ FYRR SEM BRJÓSTAKRABBAMEIN GREINIST, ÞVÍ BETRA.
Andlit herferðarinnar er Brynja Nordquist, flugfreyja hjá Icelandair til margra ára. Allir þeir sem hafa lagt hönd á plóginn við að gera þessa herferð mögulega gefa vinnu sína og oft á tíðum framleiðslu og birtingar. Flugfreyjur hafa m.a. samþykkt að þiggja ekki sölulaun af varalitunum sem merktir eru átakinu. Við viljum nota tækifærið og þakka þeim stuðninginn.

Sölutímabil er frá 1. maí til 31. ágúst og kosta 2000 kr.

 
Til baka