Nadia Katrín Banine, flugfreyja hjá Icelandair, fylgist vel með
straumum og stefnum í tískuheiminum. Hvað finnst henni nauðsynlegt að
hafa með á ferðalögum?
„Mér finnst bæði góð dag- og næturkrem ómissandi. Ég tek t.d. alltaf
með mér Estée Lauder Idealist og Advanced Night Repair, þessi blanda
klikkar ekki þegar álagið er mikið og lítið um svefn. Þar sem
vinnutíminn minn er mjög óreglulegur kemur YSL gullpenninn sterkur
inn, en hann er algjört þarfaþing og ætti að vera til í öllum flottum
kvenveskjum á landinu og þó víðar væri leitað. Einnig er ég nýbúin að
fá mér silfurhringinn flotta með sirkonia steinunum og svo féll ég
alveg fyrir DKNY silfurúrinu. Hrikalega flott saman og sparilegt“.
Nadia segist eiga ansi margt sem fæst í Saga Shop enda allt gæðavörur.
„Ég hef oft keypt góðar gjafir til að taka með í matarboð eða afmæli
og þá má ég til með að nefna salt og piparstaukana frá Georg Jensen
sem er ótrúlega flott gjöf.“
Þar sem Nadia hefur ferðast mikið spyrjum við hver sé hennar
uppáhaldsborg? „Það er New York alveg tvímælalaust. Hún kemur alltaf á
óvart og í hvert sinn er eitthvað nýtt að sjá. Ég mæli með Blue Fin
veitingastaðnum, þar sem fer saman flott hönnun og frábært sushi.
Einnig er alltaf eitthvað nýtt og spennandi á MoMa og svo má enginn
fara frá New York án þess að upplifa SoHo,“ segir Nadia að lokum.