Rakakremið nauðsynlegt

Kristinn Páll, flugmaður hjá Icelandair, heldur mest upp á stórborgina 
Madrid.
Kristinn Páll Guðmundsson, flugmaður hjá Icelandair, hefur orðið:
„Ég hef góða reynslu af því að versla í Saga Shop um borð hjá 
Icelandair. Verðið spillir ekki fyrir og einnig þykir mér ákveðinn 
gæðastimpill á vörum sem þar eru seldar.
Ég held mikið upp á Versace herrailminn, sem er virkilega svalur og 
dulur og vekur athygli hvar sem er. Einnig finnst mér nauðsynlegt að 
vera með herra rakakremið frá Clarins í snyrtitöskunni. Svo verð ég að 
nefna tvennt í viðbót. Annað er Sennheizer heyrnatólin, sem eru 
ómissandi á ferðalaginu, taka ekkert pláss og skila frábærum 
hljómgæðum, svo ekki sé minnst á þann lúxus geta verið í „Hvergilandi“ 
þegar kveikt er á „Noise Cancelling“. Hitt er vekjaraklukkan, sem 
skylda ætti hvern mann til að eiga“, segir Kristinn og brosir.
„Annars hef ég sömuleiðis oft keypt litlar gjafir til að taka með í 
matarboð s.s. „SpinWine“ vínstreyminn, sem vekur ávallt mikla lukku og 
DVD diskinn „Icelands Favourites places“ sem slær alltaf í gegn hjá 
erlendum vinum og kunningjum“.

 
Til baka