Við fögnum

Við fögnum
Um þessar mundir eru 20 ár liðin frá því að sala á tollfrjálsum 
varningi hófst í flugvélum Icelandair. Það eru því mikil tímamót hjá 
okkur og ber bæklingurinn þess merki. Við ákváðum að ferskleiki myndi 
ráða ríkjum. Við breyttum um nafn og endurskipulögðum uppsetningu og 
viðmót bæklingsins. Sömuleiðis bættum við vefinn okkar til muna, www.sagashop.is, og síðast en ekki síst er nú hægt að kaupa nokkrar vörutegundir fyrir Vildarpunkta á netinu.

 

Saga Shop styrkir átakið „Á allra vörum“ þar sem allur ágóði af YSL 
varaglossi rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins. Sömuleiðis eru nú 
í fyrsta sinn á Íslandi nokkrar vörur úr Benefit línunni fáanlegar hjá 
okkur, en Benefit er eitt af vinsælustu snyrtivörumerkjum í heimi.
Það er okkur mikils virði að heyra að viðskiptavinir okkar séu ánægðir 
og leggjum við allt kapp á að koma til móts við þá.

 

Það eru bjartir tímar framundan og viljum við nota þetta tækifæri og þakka farsæl viðskipti í 20 ár.
 
Til baka